laugardagur, júlí 30, 2005

Við Tíber

Jæja, þá er þetta stutta ævintýri sama sem úti. Nokkur andartök sem gleymdist að segja frá: Við rákumst á leiðinlega Þjóðverja (surprise), villtumst að spænsku þrepunum og heyrðum þar einhverskonar brekkusöng. Svo upplifðum við dálítið Fellini-moment þegar við vorum að ganga um á Tiber-eyju að kvöldi til innan um mannfjöldann. Skyndilega kom hávaxin fyrirsæta aðvífandi og myndatökumaður á eftir henni og svo hélt hún einhverskonar einkasýningu á sjálfri sér á torginu og hann hljóp kringum hana og myndaði. Í dag mættum við aftur á þennan stað (ekki endilega í von um að þetta endurtæki sig; og þó) og sátum allan daginn á Malibu Beach bar og drukkum kokkteila áfenga og óáfenga. Alveg magnað. Við vorum einir á barnum fyrir utan konu sem við héldum í fyrstu að væri starfsmaður og lá sofandi fram á barinn. Hálftíma síðar datt hún af barstólnum án þess að vakna. Barþjónninn náði að vekja hana og greyið konan reikaði að næstu tröppum og sofnaði þar. Frekar skökk.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home