föstudagur, júlí 29, 2005

Quo vadis, baby

Í gær tókum við tourbus um þessa leiktjaldaborg; droppuðum úr við Tíber og fengum okkur göngutúr í Transtivere þar sem allt virtist reyndar vera í siestu. En það voru opnir barir og ísbúðir þannig að allir voru ánægðir. Þannig að nú er öllum skyldum um sightseeing fullnægt. Um kvöldið fundum við pitsastað ekki langt frá Piazza Navonne og fengum okkur afskaplega flatar og góðar pitsur. Stúlkan sem þjónaði okkur til borðs á íslenska vinkonu sem vinnur á Te og Kaffi og þekkti að sjálfsögðu Björk og Sigurrós. Veitingahúsið var við mikla göngugötu og á henni mátti sjá allan útskriftaráranginn '76 úr Módelskóla Mílanó á ferðinni með eiginmönnum og börnum. Við gengum síðan framhjá hinum fræga Trevi þar sem Anita dansaði og hentum smápeningum ofan í hann. Því miður vildi svo illa til að smápeningur AM hafði viðkomu á höfðinu á öðrum túrista en við höldum að hann hafi ratað rétta leið á endanum. Við ákváðum að vera ekkert að fylgjast með því. Síðan fórum við enn og aftur á Campo Fiore; að vísu á annan bar núna. Þar sátum við þar til við vorum reknir heim um tvöleytið. Bæði kvöldin höfum við villst á leiðinni heim sem er mjög skemmtilegt og fræðandi. Rome by night. Í dag ákváðum við að fara í ríkið og kaupa föt fyrir verslunarmannahelgina, maður verður að vera flippaður um verslunarmannahelgina. Það tókst og í kvöld á að líta yfir læk til Trastevere.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home