fimmtudagur, júlí 21, 2005

Leðurblökumennska

Kominn fram á þriðjudag í næstu viku í þýðingunum. Ákvað að fara heim og fara í heitt bað. Ég er orðinn dálítið aumur í hægri handleggnum; veit ekki af hverju ég verð alltaf bara aumur í hægri - Tinna segir það stafa af því að ég kunni ekki fingrasetningu.
Það er ekki ólíklegri skýring en hver önnur.

Ég tók stutt símaviðtal við Gulla. Ég náði honum þar sem hann og Eyja voru að koma úr sundi í Reykjahlíð (sem hann vill kalla Aratungu af glamúrástæðum). Þetta er víst mjög reisuleg sundlaug með rennibraut og potti; því ber að fagna.
Hann segir mikinn uppgang þarna á svæðinu og heimtur góðar af túnum.

Hann laumast af og til út undir því yfirskyni að hann sé að fara í sund - en í rauninni er hann að forðast grænmetismafíuna og laumast út í sjoppu til að kaupa pylsu. Hann er einskonar Papillon á Djöflaeyju Bach-sveitarinnar og hefur þurft að dúsa þarna í hollustunni eina viku á ári í níu ár.
Ég get nefnt það í þessu sambandi að ég fékk mér grísakótilettu og síðan Ben and Jerry's þegar ég kom heim. Við undirbúum okkur með sitthvorri aðferðinni.

Undirbúningurinn hjá Gunnlaugi gengur annars vel. Að vísu gleymdi hann að kaupa bækurnar um Róm sem hann ætlaði að lesa í sveitinni til að geta skipulagt ferðaáætlun, hann verður þá bara að ímynda sér eitthvað. Ekki á ég eftir að koma að miklu gagni. Reynsla mín af Feneyjum sýndi mér endanlega að ég rata ekki heldur í útlöndum. Ég var að vona að þetta tengdist eitthvað íslenska ljósinu sem marglofað hefur verið í kvæðum og viðtölum við málara. En ég verð að sætta mig við að mig vantar þetta leðurblökuelement.

Til að undirbúa mig hef ég lesið "Latin American Writers at work" í "Paris Review" seríunni (þeir eru að vísu allir suður-amerískir) og horft á ítalska atriðið í "All you ever wanted to know about sex" eftir Allen -lærdómurinn sem ég dreg af því er að til að falla í hópinn og verða ekki sígaununum að bráð (en þeir eru víst running wild í Róm); hvað þá rómverska riddaranum sem rænir og ruplar; það væri nú ljótt að vera rænt af sígaunum þegar maður er orðinn fertugur og vera alinn upp af þeim...kannski þeir geti kennt mér að spila á fiðlu... anyway þá er rétt að ganga í jakkafötum (á þau) með stór sólgleraugu (vantar þau) og reykja stanslaust (get það) til að falla í hópinn.

Muna að leigja Fellini-myndir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home