Dové la pista per i bambini?
Svo var hún ekkert með hrörnunarsjúkdóm, konan sem ég þýddi myndina um! Kom mér stórlega á óvart. Hún var haldin spilafíkn. Hvað sem því líður, Gunnlaugur er kominn til byggða og undirbúningsfundur var haldinn á Galileo. Skoðaðar voru ferðahandbækur og það ákaft að Gulli varð að biðja þjónustustúlkuna um að bregða bjórnum aðeins í kæli, hann hafði hitnað svo mikið á meðan lestrinum stóð. Við æfðum nokkra góða ítalska frasa, ég var meira í gelato og doppio deildinni, Gulli leitaði að "bjór" á ítölsku og fann loksins neðst í horninu á síðu 173 í ferðahandbókinni. Greinilega ekki efst í forgangsröðinni hjá höfundum bókarinnar. Við komumst að því að hótelið er við Piazza Barberini og Via Veneto og whatnot. Ég las umsagnir á Netinu um hótelið og rak augun í að Allen E. frá Los Angeles fannst "the hotel lobby fantastic with very beautiful staff". Maður þarf greinilega ekki lengra. Sixtínska hvað. Ákváðum að halda okkur mest hinumegin við læk, í hverfinu Trastiveria (eða eitthvað). Það skilst mér að sé einhverskonar Soho Rómverja, jafnvel SoHo.
Á morgun þarf ég að þýða einn Leno áður en við förum af stað. Vonandi hefst það fyrir klukkan 13.00.
Á morgun þarf ég að þýða einn Leno áður en við förum af stað. Vonandi hefst það fyrir klukkan 13.00.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home