Blogpartí á herbergi 318
Lexusinn þaut áfram þjóðveginn í sólinni og bílstjórinn (AM) naut þess að bensíneyðslan var loks komin undir 20 lítra á hundraðið. Vegna neurotískra tendensa hans var farið klukkan hálfeitt á völlinn og beðið þar í þrjá tíma eftir að flugvélin færi. Við héldum okkur auðvitað í reyknum, til að æfa okkur fyrir Ítalíu og æfðum okkur því að sjálfsögðu í ítölsku (uno gelato con tiramisu, per favore, grazia). Einnig tókum við á móti gestum. Við fengum sæti númer 24a og 24c. Ég mæli með þeim, við vorum við neyðarútganginn og gátum teygt úr okkur. Þegar á Stansted var komið tók AM við fararstjórninni. Verkefnið var að finna skutluna á Hilton og AM hafði komið þangað þrisvar áður. Fyrst fórum við út á vitlausri hæð. AM beygði til hægri en engin rúta sást. Þá fórum við niður á næstu hæð og beygðum líka til hægri. Þá kom í ljós að við áttum að beygja til vinstri. Engin rúta sást samt sem áður. Þá sáum við mann í gulu vesti sem á var letrað "Logistics Team Leader". Hann stóð uppi á steini og vísaði fólki veginn. GTS spurði hann hvar rútan á Hilton væri en það kom í ljós að maðurinn vann ekki þarna (?) En öll él stytta upp um síðar og rútan fannst. Við skelltum okkur á barinn og pöntuðum mat. Matreiðslan var á svona need to know basis only. (Jacques Chirac!) Eftir nokkra bjóra (í tilfelli AM jarðarberja með vanilluís og þeyttum rjóma) var farið upp á herbergi og horft á sjónvarpið. AM horfði á "Sex and the City" í fimm mínútur áður en hann áttaði sig á því að þetta var ekki auglýsing af einhverju tagi. Sáum á mbl.is að stytta af Maríu mey hreyfðist í kirkju í Acerra. Hún bíður greinilega svona spennt eftir okkur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home